Punkturinn yfir å-ið

Smá símamyndablogg

October 3rd, 2008

Í hádeginu á miðvikudögum safnast fyrrverandi vírar og aðrir íslenskir DTU nemar á pizzastað sem heitir La sosta og er í göngufæri frá DTU, þar kaupir maður Frokost tilbud 9 og øl á 50 DKK. Frokost tilbud 9 er shawarma pizza með salati og einhverrri jógúrtsósu , skál með chilliolíu (hægra megin) fylgir svo með til að fullkomna þessa mögnuðu pítsu..

Einir , Örn og Eddi að gera sig tilbúna til að troða í sig sostu..

Ofur lasagna sem ég eldaði um daginn, ekki alveg vonlaus….

Félag íslenskra verkfræðinema við DTU hélt aðalfund um daginn, mættu ekki nema um 60 manns!

Við vírarnir reyndum nú að merkja okkar svæði samkvæmt hefðinni, vantaði samt eitthvað upp á drykkjuna hjá sumum(hóst, tumi, hóst hóst) þannig að þetta varð hálfgert failure.

Það var svo Íslendingapartý hérna í blokkinni um daginn, það var metnaður í söngnum eins og sést á myndinni.

Keypti þessa innkaupakerru um daginn á 70 danskar krónur, snilld í bjór/gos innkaup.

Fyrir þá sem hafa ekki séð hjól með kerru áður þá er hér mynd af Þórði frænda heitnum til samanburðar með kerruna sína árið 1978 í vesturbæ Reykjavíkur, svo þetta er ekki ný uppfinning :)

Annað var ekki í símanum að þessu sinni

Skóli og fl.

September 9th, 2008

Skólinn byjaði í síðustu viku, við Tumi byrjum reyndar á því að villast og hjóluðum einhvert lengst út í sveit, það var ekki ekki fyrr en ég tók upp símann og kveiti á gps-inu að við fórum að ná áttum. Venjulega tekur það ca 20 mínútur að hjóla þessa leið en við vorum 45 mínútur í þetta skiptið. Skólinn sjálfur virðist vera ansi magnaður. Er annars í þrem kúrsum, Reguleringteknik 2 sem er reglunarkúrs, Intelligent systems sem er kúrs um það hvernig á leysa vandamál og svo Temo eða tecnology, economics, management and organisation og fjallar hann um það hvernig á að stjórna fólki og fyrirtækjum, s.s einkonar heimspekileg (já eða heimskuleg) verkfræði. Á föstudaginn byrjaði lestin svo að ganga aftur og stoppar hún 20 metra frá húsinu hérna á Gamlamosaveginum sem er ansi þægilegt. Nokkrar góðar úr símanum:

Gammelmosevej 266, Stengården lestarstöðin er á bak við trén.

Þá má setja ýmislegt á böggleberann.

Íkorni, það var reyndar búið að keyra yfir þennan, það er bara svo erfitt að ná mynd af þeim hlaupandi.

Keypti mér örbylgjuofn um daginn, smellti honum bara á bögglaberann.

Dæmi um hjólamenninguna hérna, sér ljós fyrir hjól og sér akrein. Hrein snilld.

Iceland express er frábært flugfélag. Stuttu eftir að ég pantaði ferðina til kaupmannahafnar fékk ég póst þar sem stóð að það yrði millilent á Billund og ferðin myndi lengjast um klukkutíma. Hinsvegar stoppaði flugvélin sem var reyndar frá Canari airlines ekkert á Billund svo flugið var bara 3 tímar. Eftir 2 lestir og einn togbus hitti ég svo Hans sem lét mig hafa lykla að íbúðinni minni sem er á Gammelmosevej 266, 2880 Bagsværd við hliðina á lestarstöð sem heitir Stengården sem væri ansi þægilegt ef það væri ekki verið að skipta um teina akkúrat þennan mánuðinn. Síðan að ég kom er ég svo búinn að mála íbúðina og kaupa mér sófa og fladskærm og annað bráðnauðsynlegt stöff. Ég pimpaði svo hjólið mitt með 3 lásum og bögglabera sem er nauðsynlegur í stór(bjór)innkaupum. Ég er annars búinn að nota hjólið mitt svo mikið að ég þurfti að búa til nýtt gat á beltið mitt. Skólinn byrjar svo á þriðjudag, enda þetta á nokkrum myndum:

Hjólið

Hjólið

Ikea ferð

Pétur, Tumi og Arndís í einni af of mörgum Ikea ferðum…

Tumi að mála

Tumi að mála

Gammelmosevej 266

Gammelmosevej 266

Eldhúsið mitt

Eldhúsið mitt

Stofan, eins og klippt út úr ikea bæklingi..

Stofan, eins og klippt út úr Ikea bæklingi

Proudly powered by WordPress. Theme developed with WordPress Theme Generator.
Copyright © Punkturinn yfir å-ið. All rights reserved.